Ræstingafyrirtækið Sólar ehf. hefur fest kaup á fyrirtækinu Táhreint ehf. og færast þrír starfsmenn þess síðarnefnda yfir til Sólar eftir kaupin. Ólafur Eggertsson, stofnandi Táhreint, verður deildarstjóri sérverkefnadeildar Sólar en á meðal verkefna deildarinnar er sýruþvottur, djúphreinsun og viðhald flísa og illgresiseyðing.
Þórsteinn Ágústsson, framkvæmdastjóri Sólar, segir í fréttatilkynningu fyrirtækið nú enn betur í stakk búið til að veita fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum heildarþjónustu.
Hjá Sólar starfa nú hátt í 350 manns.