Orkla kaupir 20% í Nóa-Siríusi

Nói-Siríus hf. og Orkla ASA hafa komist að samkomulagi um kaup Orkla á 20% hlut í Nóa-Siríusi. Orkla er skráð á hlutabréfamarkað í Noregi og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins í Ósló. Velta félagsins árið 2018 var um 41 milljarður norskra króna og eru starfsmenn félagsins yfir 18 þúsund talsins.

Nói-Siríus var stofnað árið 1920. Í dag starfa um 150 manns hjá félaginu sem framleiðir fjöldann allan af sælgætistegundum. Velta félagsins árið 2018 var um 3,5 milljarðar.

Fjármálaráðgjöf Deloitte hafði umsjón með ferlinu og var ráðgjafi Nóa-Siríusar. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Áslaug Gunnarsdóttir, stjórnarformaður Nóa-Siríusar, segir í fréttatilkynningu: „Það er mikil viðurkenning fyrir starfsemi og vörumerki Nóa-Síríus, sem fagnar 100 ára afmæli á næsta ári, að fá Orkla inn í hluthafahópinn. Við eigum von á að samstarfið við Orkla verði farsælt og sjáum tækifæri í því fyrir Nóa-Síríus til framtíðar.“

Finnur Geirsson, forstjóri Nóa-Siríusar, segir í fréttatilkynningu: „Við erum mjög ánægð með þessa niðurstöðu og hlökkum til að vinna með Orkla að rekstri félagsins. Nói-Síríus byggir á rótgrónum og traustum grunni og munum við halda áfram þeirri vegferð sem fyrirtækið hefur verið á undanfarin ár. Við gerum þó ráð fyrir að nýr hluthafi muni leggja sitt af mörkum við að styrkja og efla starfsemi félagsins enn frekar á jákvæðan hátt fyrir fyrirtækið í heild, starfsfólk þess og viðskiptavini.“

Jeanette Hauan Fladby, forstjóri Orkla Confectionery & Snacks, segir í fréttatilkynningu: „Nói-Síríus hefur sérstöðu á Íslandi og fellur fyrirtækið vel að leiðandi vörumerkjum í eignasafni Orkla. Súkkulaði, snakk og sælgæti, sem eru megin vöruflokkar hjá Orkla, eru vöruflokkar sem eru að vaxa mikið. Við sjáum mikil tækifæri til að skapa virði með því að nýta styrkleika fyrirtækjanna þvert á markaði, auka skilvirkni í framleiðslu Nóa-Síríus og styrkja stöðu Orkla á Íslandi, sem er vaxandi markaður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK