María Rún Hafliðadóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri hjá veitingafyrirtækinu FoodCo hf. María Rún kemur frá Icelandair þar sem hún starfaði í 16 ár, síðast sem forstöðumaður þjónustusviðs og á árunum 2004-2007 sem forstöðumaður þjónustudeildar og þjónustueftirlits.
Þar áður starfaði hún sem þjónustu- og gæðastjóri hjá Kaupþingi og sem fræðslustjóri hjá Vodafone. María Rún er með BS-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Wiesbaden í Þýskalandi og MS-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.
María Rún mun taka við hlutverki mannauðsstjóra í sameinuðu félagi Gleðipinna frá og með næstu áramótum, en eins og nýverið var greint frá hyggjast Gleðipinnar og FoodCo sameinast, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, undir nafni fyrrnefnda félagsins. Gangi sameiningin eftir munu um 700 manns starfa hjá Gleðipinnum.
Fram kemur í tilkynningunni, að eitt af yfirlýstum markmiðum hins sameinaða félags sé að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir starfsfólk og bjóða því m.a. námsstyrki svo það eigi auðveldara með að stunda nám samhliða vinnu.