Heiður Björk Friðbjörnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa og mun taka við starfinu í mars af Brynjari Steinarssyni.
„Ég er full tilhlökkunar að koma til starfa hjá Samkaupum, það verður gaman að takast á við ný verkefni og taka þátt í þeirri vegferð sem framundan er hjá fyrirtækinu,“ segir Heiður Björk í tilkynningu.
Heiður Björk hefur víðtaka reynslu á sviðum fjármála en hún hefur starfað hjá Arion banka síðan 2007, meðal annars sem fjármálaráðgjafi, sérfræðingur í fyrirtækjalánum, viðskiptastjóri fyrirtækja og síðast sem þjónustustjóri einstaklinga í aðalútibúi bankans.
Hún hefur lokið MBA-námi við Háskóla Íslands, er með BS.c. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, með próf í verðbréfamiðlun og er vottaður sem fjármálaráðgjafi.
Samkaup reka 60 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Háskólabúðin og Iceland.