ESA samþykkir viðbótarlán

Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Eggert

Eft­ir­lits­stofn­un EFTA (ESA) samþykkti í dag ráðstöfun íslenskra stjórnvalda er snýr að því að tryggja aðgang fyrirtækja í tímabundnum vanda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru að lausu fé. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Á þessum erfiðu tímum er það forgangsatriði okkar að takast á við ráðstafanir sem tengjast heimsfaraldri kórónuveiru. Okkur hefur tekist að samþykkja umrædda ráðstöfun skjótt, þökk sé góðu samstarfi okkar við íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn ESB,“ segir Bente Angell-Hansen, forseti ESA, í fréttatilkynningu.

Vegna kórónuveirufaraldursins standa mörg fyrirtæki frammi fyrir tímabundnu tekjufalli og lausafjárvanda en þurfa engu að síður að greiða fastan kostnað.
„Ráðstöfunin mun veita þeim fyrirtækjum, sem verða verst úti vegna efnahagslegra áhrifa kreppunnar, aðgang að lánum á hagstæðum kjörum, sem mun hjálpa þeim að standa undir rekstrarkostnaði og halda áfram starfsemi sinni,“  segir Högni S. Kristjánsson, stjórnarmaður ESA, í fréttatilkynningu.

Íslensk stjórnvöld munu veita ríkisábyrgð á viðbótarlánum sem veitt eru af lánastofunum til að mæta tímabundnum lausafjárvanda fyrirtækja. Heildarábyrgð ríkissjóðs vegna viðbótarlána getur numið allt að 50 milljörðum króna. 

Þau fyrirtæki sem koma til með að njóta ríkisábyrgða geta ekki frá 1 mars 2020 og meðan ábyrgðin er í gildi greitt út arð, óumsamda kaupauka, keypt eigin hlutabréf eða veitt eða greitt lán til eigenda eða nákominna aðila, greitt víkjandi lán fyrir gjalddaga, eða greitt neinar þær greiðslur til eigenda eða nákominna aðila sem ekki eru nauðsynlegar til að viðhalda rekstri og rekstrarhæfi félagsins

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK