Vöruviðskipti voru óhagstæð um 12,5 milljarða í júnímánuði en verðmæti vöruútflutnings nam 46,8 milljörðum króna í júní 2020, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands, og verðmæti vöruinnflutnings 59,3 milljörðum króna.
„Í júní 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 29 milljarða króna á gengi hvors árs. Verðmæti vöruútflutnings var 1,1 milljarði króna hærra í júní 2020 en í júní 2019 eða sem nemur 2,4% á gengi hvors árs. Í fjárhæðum var mest aukning í útflutningi á sjávarafurðum“, segir í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
„Verðmæti vöruinnflutnings í júní 2020 var 15,4 milljörðum lægra en í júní 2019 eða 20,6% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á flutningatækjum annars vegar og eldsneyti og smurolíum hins vegar.“
Sérstaklega er tekið fram í tilkynningunni að um bráðabirgðatölur sé að ræða og gætu niðurstöður því breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.