Jói Fel lokar í JL húsinu

Búið er að loka bakaríi Jóa Fel í JL húsinu. Viðskiptavinir bakarísins komu að luktum dyrum í morgun, en engar skýringar hafa verið gefnar á lokuninni. Kemur lokun útibúsins í kjölfar fregna af vanskilum fyrirtækisins. 

Eins og Morgunblaðið greindi fyrst frá í síðustu viku hefur bakarískeðjan ekki greitt lífeyrisiðgjöld starfsfólks. Lífeyrissjóður verslunarmanna krafðist af þeim sökum gjaldþrotaskipta. 

Viðskiptavinir komu að luktum dyrum í morgun.
Viðskiptavinir komu að luktum dyrum í morgun. Mbl.is/Aron Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK