Kvika hækkaði mest á árinu 2020

Kauphöllin.
Kauphöllin. Ljósmynd/Aðsend

Heildarviðskipti með skráð hlutabréf hér á landi námu 602 milljörðum króna á árinu 2020. Það er um 2.417 milljónir á dag eða lítillega minna en í fyrra þegar heildarviðskiptin voru um 2.476 milljónir á degi hverjum. 

Mest viðskipti voru með bréf Marels á árinu eða 103,2 milljarðar króna. Þar á eftir var Arion banki, 79,4 milljarðar króna og svo Festi þar sem heildarviðskiptin voru um 43,7 milljarðar kr. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland fyrir árið 2020. 

Óvenjulegt ár á markaðnum

„Það er óhætt að segja að árið hefur verið mjög óvenjulegt á markaði en Covid-19 skapaði mikinn óróa hér sem annars staðar,“ segir Finnbogi Rafn Jónsson, forstöðumaður viðskipta og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland.

„En markaðurinn stóð veðrið af sér. Úrvalsvísitalan hækkaði t.a.m. um 20,5% á árinu og skráð félög öfluðu sér 29 milljarða á markaði í haust auk þess að nýta hlutabréf sín sem gjaldmiðil við yfirtökur. Hæst bar útboð Icelandair Group sem var það þriðja stærsta í sögu markaðarins. Þar lét almenningur til sín taka svo um munaði og tvöföldun varð á fjölda einstaklinga á markaðnum.“

Kvika í sérflokki

Á aðalmarkaði kauphallarinnar hækkaði verð bréfa Kviku banka mest á árinu eða um 63,5% en þar á eftir bréf TM sem hækkuðu um 53,6% og bréf Origo sem hækkuðu um 50,9%. Á Nasdaq First North markaðnum hækkaði verð bréfa Hampiðjunnar mest eða um 75%.

Markaðsvirði skráðra hlutabréfa var í árslok 1.563 milljarðar samanborið við 1.251 milljarð í lok árs 2019 sem er 24% hækkun milli ára. Í lok árs voru 23 félög skráð, þar af 4 á Nasdaq First North.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK