Útboðsþing Samtaka iðnaðarins fer fram í dag frá klukkan 9:00 til 10:30. Þingið er haldið í samvinnu við Mannvirki – félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda, en þar munu fulltrúar 11 opinberra aðila kynna fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því yfirlit yfir helstu útboð ársins.
Hægt verður að fylgjast með þinginu í streyminu hér að neðan, en fulla dagskrá má sjá hér fyrir neðan.
- Fundarstjórn – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
- Setning – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
- Reykjavíkurborg – Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
- Framkvæmdasýsla ríkisins - Guðrún Ingvarsdóttir forstjóri
- Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri
- Orka náttúrunnar - Hildigunnur Jónsdóttir, forstöðuman verkefnastofu
- Landsvirkjun - Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
- Faxaflóahafnir - Inga Rut Hjaltadóttir, forstöðumaður tæknideildar
- Vegagerðin - Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
- Landsnet - Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
- NLSH - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
- Veitur - Katrín Karlsdóttir, teymisstjóri verkefnastjóra
- Isavia - Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri verkfræðideildar