Samkvæmt drögum að uppgjöri fyrir fyrri helming rekstrarárs Haga hf., þ.e. fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021, má búast við að EBITDA afkoma félagsins verði um 5.500 milljónir króna. Til samanburðar var afkoman á sama tímabili í fyrra 4.316 milljónir kr. Í ljósi þessa og samkvæmt áætlun stjórnenda á afkomu félagsins fyrir seinni árshelming þá hefur EBITDA afkomuspá verið hækkuð um 700 milljónir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, en uppgjörið verður svo birt þann 19. október.
Hagar segja að afkoma félagsins verði umfram áætlanir. Bæði hafi rekstur verið nokkuð umfram áætlanir auk þess sem afkomuáhrif af sölu Útilífs komi fram á öðrum ársfjórðungi.
„Gera má ráð fyrir að EBITDA afkoma á fyrri árshelmingi verði um 5.500 millj. kr. en til samanburðar var EBITDA afkoma fyrri árshelmings í fyrra 4.316 millj. kr.,“ segir í tilkynningunni.
„Í ljósi þessa og samkvæmt áætlun stjórnenda á afkomu félagsins fyrir seinni árshelming þá hefur EBITDA afkomuspá verið hækkuð um 700 millj. kr. Gert er ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2021/22 verði á bilinu 9.300-9.800 millj. kr.,“ segir ennfremur.