Gögnum lekið frá svissneskum banka

Upplýsingum um viðskiptavini svissneska bankans Credit Suisse hefur verið lekið.
Upplýsingum um viðskiptavini svissneska bankans Credit Suisse hefur verið lekið. AFP

Upplýsingum um viðskiptavini svissneska bankans Credit Suisse hefur verið lekið. Um er að ræða u.þ.b. þrjátíu þúsund viðskiptavini sem eiga ríflega eitt hundrað milljarða franka í bankanum.

Uppljóstrari innan bankans lak gögnunum

Upplýsingunum var lekið af ónefndum uppljóstrara innan bankans og síðan sendar á þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung. Haft er eftir uppljóstraranum að hann telji svissnesk lög um leynd bankaupplýsinga vera ósiðleg. Süddeutsche Zeitung er eflaust mörgum kunnuglegt en blaðið átti stóran hlut í Panamaskjölunum svokölluðu.

Fjölmargir miðlar, víða um heiminn, tóku þátt í vinnslu gagnanna en að þessu sinni er enginn íslenskur miðill á meðal þeirra. Ólíklegt er að upplýsingar um Íslendinga séu að finna í lekanum þar sem Credit Suisse hefur enga starfsemi hér á landi.

The Guardian er einn þeirra fjölmiðla sem fjallað hefur ítarlega um málið.

Vafasamir einstaklingar á meðal viðskiptavina

Marga umdeilda aðila er að finna meðal viðskiptavina Credit Suisse. Má þar nefna Ronald Li Fook-shiu, fyrrum yfirmann kauphallarinnar í Hong Kong, sem sat í fangelsi um árabil vegna mútuþægni, sænska forritarann Stefan Sederholm, sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir mansal á Filippseyjum, og aðila með tensl við hina ýmsu einræðisherra á borð við Ferdinand Marcos heitinn.

Í gögnunum er einnig að finna upplýsingar um bankareikning Vatíkansins, sem benda til þess að Vatíkanið hafi varið 350 milljón evrum, jafnvirði rúmlega 49 milljarða íslenskra króna, í vafasama fjárfestingu í London.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK