Sameina fjögur byggingarfyrirtæki í eitt

Kristján Geir Gunnarsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Kamba.
Kristján Geir Gunnarsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Kamba.

Glerverksmiðjan Samverk á Hellu, Trésmiðjan Börkur Akureyri, Gluggasmiðjan Selfossi og Sveinatunga hafa nú sameinast undir einu nafni, Kambar. Áætluð ársvelta hins sameinaða félags er um 2,5 milljarðar króna og er félagið með starfsemi á fimm stöðum á landinu.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Kristján Geir Gunnarsson er nýráðinn framkvæmdastjóri sameinaðs rekstrar þessara félaga. Hann segir að innan þessara fyrirtækja sé mikil þekking á íslenskum byggingarmarkaði sem byggst hafi upp í tugi ára. „Allar vörur þeirra eru sérstaklega þróaðar fyrir íslenskar aðstæður og afgreiðslutími er mun skemmri vegna nálægðar við markaðinn,“ segir Kristján Geir um sameininguna.

„Kambar framleiða vörur í hæsta gæðaflokki fyrir krefjandi íslenskar aðstæður. Vörurnar byggjast á íslensku verklagi og framúrskarandi hugviti. Við framleiðum umhverfisvænar vörur sem eru til hagsbóta fyrir umhverfið og samfélagið. Ég hef sérstaklega áhuga á að leiða metnaðarfulla sýn Kamba, sem er að verða umhverfisvænasti framleiðandi glugga, glers og hurða í heiminum og loka þannig húsinu á umhverfisvænasta máta sem til er,“ segir Kristján Geir ennfremur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK