Birgir Viðarsson mun taka við af Auði Daníelsdóttur, sem framkvæmdastjóri sölu- og ráðgjafar hjá Sjóvá næstu mánaðarmót. Þá kemur Svali H. Björgvinsson inn í framkvæmdastjórn sem framkvæmdastjóri markaðsmála- og viðskiptaþróunar.
Auður sagði starfi sínu lausu eftir að hafa starfað hjá Sjóvá frá árinu 2002. Hefur hún sinnt stöðu framkvæmdastjóra starfsmanna- og rekstrarmála, framkvæmdastjóra tjónasviðs og nú síðast var hún framkvæmdastjóri sölu- og ráðgjafar.
„Á liðnum 19 árum hefur Auður markað djúp spor í rekstri Sjóvár með sínu framlagi. Auður á að baki fjölbreyttan og farsælan feril og hefur tekist á við krefjandi verkefni. Þau hefur hún leyst af hendi með afbrigðum vel enda mikill leiðtogi sem fær samstarfsmenn til að fylgja sér á skýrri og metnaðarfullri vegferð,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
„Það er alltaf gleðiefni þegar einstaklingum býðst að takast á við nýjar áskoranir og byggja ofan á árangursríkan feril sinn. Auði fylgja góðar kveðjur um áframhaldandi gæfuríkt gengi með mikilli virðingu og þakklæti fyrir hennar framlag fyrir Sjóvá.“
Birgir hefur starfað hjá Sjóvá frá árinu 2011, hann er verkfræðingur að mennt og hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar á sölu- og ráðgjafarsviði.
Með innkomu Svala í framkvæmdastjórn fjölgar framkvæmdastjórum um einn. Svali gegnir nú starfi forstöðumanns viðskiptaþróunar og stefnumótunar. Hann er sálfræðingur að mennt og hóf störf hjá Sjóvá árið 2018.
Frá og með næstu mánaðarmótum verða eftirtalin í framkvæmdastjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Hermann Björnsson er forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir er framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni. Þá er Elín Þórunn Eiríksdóttir framkvæmdastjóri tjónaþjónustu og Birgir Viðarsson verður framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar. Svali H. Björgvinsson verður svo framkvæmdastjóri markaðsmála og viðskiptaþróunar