Hilmar Stefánsson, framkvæmdastjóri Special Tours hefur ákveðið að láta af störfum að eigin ósk. Ásta María Marinósdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Special Tours og hefur þegar hafið störf. Ásta María hefur starfað hjá Special Tours síðan 2013 og sem sölustjóri síðan 2015.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þá segir að Þóra Matthildur Þórðardóttir hafi verið ráðin sölu- og markaðsstjóri, en hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2018.
„Special Tours er þjónustu- og markaðsfyrirtæki í ferðaþjónustu sem leggur áherslu á siglingar í afþreyingarskyni allt árið um kring. Félagið gerir út frá gömlu höfninni í Reykjavík, sem er eitt vinsælasta svæði meðal ferðamanna í borginni, og býður meðal annars upp á hvalaskoðunarferðir, norðurljósaferðir á sjó, lundaskoðunarferðir og sjóstangaveiði. Í samstæðu Special Tours er auk þess hvalasýningin Whales of Iceland. Þá rekur félagið einnig kaffihúsið Reykjavík Röst við gömlu höfnina,“ segir í tilkynningu þar sem stjórn fyrirtækisins þakkar jafnfram Hilmari fyrir gott samstarf.