Vilja endurtaka stjórnarkjör í Sýn

mbl.is/Hari

Þrír hluthafar í Sýn hafa gert kröfu um að aftur verði haldinn hluthafafundur í félaginu þar sem fram fer stjórnarkjör. Að kröfunni standa þrír hluthafar sem eiga um 10,2% hlut í félaginu.

Hluthafarnir sem óska eftir fundinum eru Fasti ehf., sem er í eigu hjónanna Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Einarsdóttur, en félagið á um 7,7% hlut í Sýn. Hilmar Þór bauð sig sem kunnugt er fram í stjórn Sýnar á hluthafafundi sem fram fór 31. ágúst sl. en náði ekki kjöri.

Hin félögin eru Tækifæri ehf, sem er í eigu Trausta Ágústssonar og Arnars Más Jóhannessonar, og á um 2,2% hlut, og Borgarlind ehf., sem er í eigu Stefáns Más Stefánssonar, og á um 0,2% hlut.

Óskar er eftir því að boðað verði til hluthafafundar í Sýn  innan 14 daga.

Sem fyrr segir fór stjórnarkjör fram í Sýn 31. ágúst sl. en þá hafði Gavia ehf., hvar Reynir Grétarsson og Jón Skaftason eru í forsvari, farið fram á að stjórnarkjör yrði haldið í félaginu. Þeir buðu sig fram í stjórn en aðeins Jón náði kjöri. Gavia hafði í júlí keypti allan hlut Heiðars Guðjónssonar, fráfarandi forstjóra, og síðan aukið við hlut sinn í félaginu og fer nú með um 20% hlut með beinum og óbeinum hætti.

Hilmar Þór keypti nýlega tæplega 8% hlut Róberts Wessmans í gegnum félag sitt og bætti við sig um 1% hlut stuttu síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka