Íslenska gleraugnaverslunin Eyesland átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur gleraugnaverslunar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið mun því opna verslun í flugstöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Opnað var fyrir útboð fyrir gleraugnaverslun fyrr á þessu ári og sendu tvö fyrirtæki inn gögn til þátttöku, að því er Isavia segir í tilkynningu.
Þá segir, að við mat á tilboðunum hafi verið horft til tveggja meginþátta, tæknilegs og fjárhagslegs. Sérfræðiteymi eru á bak við hvorn matsflokk en meðal þess sem hefur áhrif á matið eru vöruúrval, gæði, þjónusta og verð, hönnun, sjálfbærni og markaðssetning að sögn Isavia.
Þá kemur fram í tilkynningu, að Isavia beri að bjóða út verslunar- og veitingarými á Keflavíkurflugvelli sem nái yfir lágmarks virði á samningstímanum.
„Útboðunum er ætlað að tryggja samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur og rekstraraðila. Útboðin eru auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Isavia fylgir lögum og reglum um opinber innkaup. Útboð Isavia byggjast á grundvelli reglugerðar nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk og þjónustu.“