Bjartsýn eftir endurteknar hindranir

Guðjón Ingi Sigurðsson og Sif Garðarsdóttir eigendur Train Station. Hugmyndin …
Guðjón Ingi Sigurðsson og Sif Garðarsdóttir eigendur Train Station. Hugmyndin á bakvið stöðina var að geta verið með stærri hópa en bjóða persónumiðaðri þjónustu. Árni Sæberg

Líkamsræktarstöðin Train Station í Dugguvogi hélt nýlega upp á fjögurra ára afmæli sitt. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að fyrirtækið hefur þurft að yfirstíga ýmsar hindranir á stuttum starfstíma.

Málaferli, veirufaraldur og gríðarlegt rask í næsta nágrenni hefur allt reynst mikil áskorun eins og Guðjón Ingi Sigurðsson, annar eigenda, talar um í samtali við ViðskiptaMoggann. Hann vonar að vandræðin séu að baki og horfir nú björtum augum fram á veginn.

„Við byrjuðum upphaflega að byggja upp stöðina í leiguhúsnæði í gömlu kartöflugeymslunum við Rafstöðvarveg í Reykjavík. Húsnæðið hélt hvorki vatni né vindi þegar á reyndi. Við lentum í leiðinlegum deilum við húseiganda en ekkert var gert til að stöðva lekann.

Enginn vilji var til að bæta tjónið. Á endanum urðum við að rifta leigusamningnum. Þetta endaði í málaferlum sem enn sér ekki fyrir endann á,“ útskýrir Guðjón.

Lestu ítarlegri umfjöllun í ViðskiptaMogganum í gær.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK