Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún alfarið ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Eins og 200 mílur hafa áður greint frá kemur fram í ráðgjöf stofnunarinnar að staða margra helstu nytjastofna sé sterk.
Samkvæmt ákvörðun ráðherrans verða aflaheimildir fyrir ýsu og ufsa auknar verulega auk þess sem aflaheimildir fyrir þorsk og steinbít verða auknar nokkuð. Aftur á móti verður dregið úr aflaheimildum fyrir íslenska sumargotssíld og gullkarfa enda mældist ástand þessara stofna veikt.
„Sjálfbær nýting auðlinda hafsins byggð á vísindalegri ráðgjöf er lykilatriði í fiskveiðistjórnun okkar Íslendinga. Þessi stefna hefur skilað þeim árangri að margir af okkar helstu nytjastofnum eru að styrkjast,“ segir Kristján Þór.
„Um leið er þessi stefna ein meginforsenda þess að íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð. Til að viðhalda þeirri stöðu og sækja fram er mikilvægt að við treystum undirstöður vísindalegrar ráðgjafar með því að efla hafrannsóknir enn frekar líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.“
Ljóst má vera af þessu að ekki er tekið tillit til þeirra tillaga sem Landssamband smábátaeigenda kynnti í gær, en farið var yfir þær á fundi með ráðherranum á föstudag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |