Fyrir austan eru menn ósáttir við hvar makríllinn heldur sig um þessar mundir. Virðist hann halda sig djúpt vestur af landinu þar sem góð veiði hefur verið. Reiknað er þó með að hann færi sig austar með tímanum.
Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar, en makrílvinnsla hófst í fiskiðjuveri útgerðarinnar í Neskaupstað 1. ágúst, en þá kom Beitir NK með afla sem fékkst vestur af Vestmannaeyjum og á Papagrunni.
Börkur NK kom síðan til löndunar í fyrrinótt með 550 tonn, sem fengust fyrir vestan.
„Vertíðin hefur gengið afar vel hjá okkur það sem af er og við erum nú að landa fullfermi af frystum makríl í fjórða sinn,“ er haft eftir Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq, en skipið hefur verið að makrílveiðum í grænlenskri lögsögu frá því í lok júní ásamt skipinu Polar Princess.
„Það hefur verið mjög mikið af makríl í grænlensku lögsögunni og hann er nú að ganga yfir í íslenska lögsögu vestur af landinu. Þar er nú mokveiði beggja vegna línunnar. Það verður spennandi að sjá hvert makríllinn gengur síðan. Mun hann ganga norður fyrir eða suður fyrir landið? Það veit í reynd enginn. Þetta er stór og góður makríll en það er töluverð áta í honum. Við á Polar Amaroq erum afar sáttir við vertíðina hingað til. Við erum búnir að veiða meira en alla vertíðina í fyrra. Þetta hefur sannast sagna verið alger veisla,“ segir skipstjórinn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |