„Enn einn sigur“ Samherja

Þorsteinn Már Baldvinsson gengur á fund seðlabankastjóra og bankaráðs Seðlabankans.
Þorsteinn Már Baldvinsson gengur á fund seðlabankastjóra og bankaráðs Seðlabankans. mbl.is/Hari

Álit umboðsmanns Alþingis, sem birt var á föstudag, er „enn einn sigur“ Samherja í deilum fyrirtækisins við Seðlabanka Íslands og staðfestir það sem stjórnendur útgerðarinnar hafa alltaf sagt varðandi framgöngu stjórnenda Seðlabankans gagnvart starfsfólki Samherja og fyrirtækinu sjálfu.

Þetta segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í ávarpi til starfsmanna útgerðarinnar sem birt hefur verið á vef Samherja. Ávarpið hefst á eftirfarandi tilvitnun:

„Hann er ekki guð og hann er ekki óskeikull og hann er ekki dómstóll.“

„Þessi fordæmalausu orð lét seðlabankastjóri hafa eftir sér í útvarpsviðtali þann 22. nóvember 2015, um álit umboðsmanns Alþingis frá 2. október sama ár. Athugasemdin ber þess keim að seðlabankastjóri hafi ekki ætlað sér að bregðast við athugasemdum umboðsmanns um stjórnsýslu bankans og á ótrúlegan hátt komst hann upp með það,“ skrifar Þorsteinn Már.

Lýsi því hvernig seðlabankastjóri líti á vald sitt

Seðlabankastjóri hafi þá gert sér grein fyrir því að gjaldeyrisreglur hefðu ekki getað verið grundvöllur aðgerða allt frá árinu 2011. Á blaðamannafundi 21. september 2011 hafi hann látið eftirfarandi orð falla:

Það sem að við höfum verið að bíða eftir og í fyrsta lagi náttúrulega að yrði samþykkt þetta frumvarp á þinginu, nú liggur það fyrir. Vegna þess að þar fáum við miklu traustari lagaheimildir, sko nú er það þannig að það er alltaf umdeilt meðal lögfræðinga orðið þessa dagana hvort þú mátt gera eitthvað. Sumir segja þú mátt aldrei gera neitt nema það standi nákvæmlega í lögunum að þú megir gera það. Aðrir segja, ja, það er ekki bannað og þú hefur svona almennar heimildir. Út af þessu og þetta er eitthvað sem lögfræðingastéttin á Íslandi þarf að gera upp við sig.

Segir Þorsteinn að þessi tilvitnun lýsi því ef til vill einnig hvernig seðlabankastjóri líti á vald sitt. Til einföldunar megi draga gagnrýni umboðsmanns saman með eftirfarandi hætti:

  • Stjórnendur seðlabankans vissu að bankinn gæti ekki sektað, en gerðu það samt.
  • Seðlabankinn hefur ekki beitt meðalhófi eins og aðrar stofnanir.
  • Seðlabankinn hefur beitt jafnræðisreglu með röngum hætti.
  • Seðlabankinn hefur veitt umboðsmanni og öðrum rangar upplýsingar.
  • Seðlabankinn leyndi umboðsmann upplýsingum.

Þessu til viðbótar sé rétt að halda til haga ummælum umboðsmanns Alþingis í bréfi hans til Seðlabankans, 2. október 2015, þar sem hann hafi sagt að vafa beri að túlka borgurum í hag.

Hóflega bjartsýnn

„Ágætu starfsmenn, álit umboðsmanns Alþingis er enn einn sigur okkar og staðfestir það sem við höfum alltaf sagt varðandi framgöngu stjórnenda seðlabankans gagnvart starfsfólki Samherja og fyrirtækinu sjálfu,“ skrifar Þorsteinn Már að lokum.

„Það verður fróðlegt að sjá greinargerð bankaráðs til forsætisráðherra um framgöngu stjórnenda seðlabankans gagnvart Samherja og hvort hún geti orðið grundvöllur þess að þessu máli ljúki. Ég verð þó að viðurkenna að eftir allt sem á undan hefur gengið er ég hóflega bjartsýnn á það og er undir það búinn að við þurfum að gera okkar skýrslu til forsætisráðherra, af nógu er að taka. Stjórnendur seðlabankans hafa ítrekað brotið á okkar réttindum og hefur framferði þeirra verið óátalið til þessa. Ég get þó ekki annað en vonað að nú verði breyting á þegar forsætisráðherra hefur skorist í leikinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »