Leifur Geir Hafsteinsson hefur verið ráðinn í nýtt starf mannauðsstjóra hjá Völku. Hann hefur víðtæka reynslu bæði sem stjórnandi og sérfræðingur í stjórnun og mannauðsstjórnun.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en undanfarin fimm ár hefur Leifur Geir starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri Hagvangs og jafnframt sem sjálfstæður ráðgjafi í gegnum eigið félag.
Leifur Geir lauk doktorsgráðu í vinnu- og skipulagssálfræði frá Virginia Tech-háskólanum auk BSc-gráðu í tæknilegri eðlisfræði og kennsluréttindanáms frá Háskóla Íslands. Í doktorsnáminu lagði Leifur Geir áherslu á hvatningu í starfi, markmiðasetningu, notkun sálfræðilegra prófa í ráðningum ásamt aðferðafræði og tölfræðirannsóknum.
Hann hóf störf í mannauðsmálum árið 1998 sem starfsmannastjóri frumkvöðlafyrirtækisins Álits ehf., sem var hið fyrsta sinnar tegundar í útvistun tölvureksturs.
Eftir doktorsnám starfaði Leifur Geir sem lektor og dósent í Háskólanum í Reykjavík frá 2004 til 2010 og hefur undanfarin ár kennt námskeið á meistarastigi í vinnusálfræði og mannauðsstjórnun sem stundakennari við skólann.
Mikið gleðiefni
Leifur Geir stofnaði fyrstu crossfit-stöð Íslands í Sporthúsinu árið 2008 og átti ríkan þátt í uppbyggingu crossfit-íþróttarinnar á Íslandi. Eftir farsæla uppbyggingu var stöðin seld eigendum Sporthússins sem reka hana enn í dag.
Á sínum yngri árum lék Leifur Geir fótbolta með meistaraflokki ÍBV og Stjörnunnar og skoraði 33 mörk í 101 leik í efstu deild. Hann lauk ferlinum með Íslandsmeistaratitli með ÍBV 1997.
„Það er mikið gleðiefni fyrir Völku að fá Leif Geir í okkar góða hóp starfsmanna. Valka hefur vaxið hratt síðustu árin og eru starfsmenn fyrirtækisins nú um áttatíu,“ er haft eftir Helga Hjálmarssyni, stofnanda og framkvæmdastjóra Völku.
„Stefnt er að því að fjölga starfsmönnum enn frekar á komandi misserum og því mikill happafengur að fá jafn reynda manneskju í það verkefni og Leif Geir. Ég býð hann því hjartanlega velkominn í hópinn.”