Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rétt fyrir sex í kvöld tilkynning um eld um borð í fiskibátnum Æsi. Þrír voru um borð í bátinum þegar eldurinn kom upp, en hann var þá staddur vestur af Flatey á Breiðafirði.
Þegar í stað var ákveðið að kalla út TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli skömmu síðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Einnig var TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, beðin um að halda að bátnum, varðskipið Týr og björgunarsveitir Landsbjargar á Snæfellsnesi.
Var flugvélin, sem var í löggæsluverkefni þegar útkallið barst, komin yfir bátinn klukkan 18:09 en þá voru mennirnir þrír komnir í flotgalla. Enginn reykur var þá sjáanlegur í bátnum, en hiti engu að síður greinanlegur með hitamyndavél flugvélarinnar.
Björgin, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, varðskipið Týr og TF-LIF eru nú á leið á vettvang auk þriggja harðbotna slöngubáta frá Landsbjörg. Eins er fiskibáturinn Hafey komin að bátnum og eru skipverjarnir þrír óhultir.
Áhöfnin á Hafey tók Æsi í tog á áttunda tímanum í kvöld og dregur hann nú áleiðis til Brjánslækjar.
Björgunarskipinu Björgu frá Rifi, varðskipinu Tý, flugvél Landhelgisgæslunnar og þyrlunni Líf var hins vegar snúið við.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 603,43 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,79 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 280,34 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 248,81 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 261,04 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 320,81 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Særún EA 251 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.856 kg |
Ufsi | 30 kg |
Ýsa | 12 kg |
Karfi | 4 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Samtals | 1.904 kg |
19.9.24 Sara ÍS 186 Annað - Hvað | |
---|---|
Ýsa | 539 kg |
Þorskur | 131 kg |
Samtals | 670 kg |
19.9.24 Hafbjörg ST 77 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.997 kg |
Ufsi | 69 kg |
Samtals | 2.066 kg |
19.9.24 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 473 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 485 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 603,43 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,79 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 280,34 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 248,81 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 261,04 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 320,81 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Særún EA 251 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.856 kg |
Ufsi | 30 kg |
Ýsa | 12 kg |
Karfi | 4 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Samtals | 1.904 kg |
19.9.24 Sara ÍS 186 Annað - Hvað | |
---|---|
Ýsa | 539 kg |
Þorskur | 131 kg |
Samtals | 670 kg |
19.9.24 Hafbjörg ST 77 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.997 kg |
Ufsi | 69 kg |
Samtals | 2.066 kg |
19.9.24 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 473 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 485 kg |