„Kúnstin að kunna að nýta gamlar lausnir rétt“

Sævar Birgisson, framkvæmdastjóri Skipasýnar, hefur langa reynslu af hönnun fiskiskipa …
Sævar Birgisson, framkvæmdastjóri Skipasýnar, hefur langa reynslu af hönnun fiskiskipa og segir það mjög sérhæft viðfangsefni enda skipin flókin og búin miklum búnaði. mbl.is/Árni Sæberg

Framkvæmdastjóri Skipasýnar segir mikla sérhæfingu felast hönnun fiskiskipa. Um er að ræða flókin skip sem hlaðin eru miklum búnaði enda þurfa þau að vera fjölhæf og geta veitt, framleitt og fraktað.

Þetta er allt af flottustu gerð,“ segir Sævar Birgisson, framkvæmdastjóri Skipasýnar, um nýjan Baldvin Njálsson GK 400 sem fyrirtækið hefur hannað fyrir Nesfisk ehf. á Reykjanesi. Stefnt er að því að skipið hefji veiðar árið 2022. Um er að ræða flaka- og frystitogara sem er 66 metra langur og 16 metra breiður. Þá mun togarinn hafa 580 fermetra vinnsludekk, 1.720 rúmmetra lest og togkrafturinn nema 67 tonnum.

Sævar segir talsverða vinnu hafa farið í að hanna lestina og brettakerfi. Þá sé kerfið svipað og í Sólbergi ÓF-001. „Það er sorterað og svo er allt sett á bretti uppi á dekki. Allt er á brettum í lestinni og svo er neðri lest,“ útskýrir hann. „Þetta er allt af fullkomnustu gerð. Mér skilst að vinnslukerfið verði frá Optimar.“

Nýr Baldvin Njálsson GK 400.
Nýr Baldvin Njálsson GK 400. Teikning/Skipasýn

Spurður hvort miklar breytingar hafi átt sér stað í hönnun skipa af þessari gerð undanfarin ár segir hann vissulega svo að breytingar hafa orðið en engar byltingar. „Stóra breytingin er að bretta fiskinn á dekki og vöruhótelið sér um að flokka eftir vörunúmerum og safna þeim á bretti í lestinni. Þetta sparar alveg óskaplega vinnu og mikla peninga í landi. Þetta er vinna sem er unnin uppi á kaja þegar landað er úr eldri skipunum. Í Baldvini er tölvubúnaður sem sér um að flokka þetta eftir vörunúmerum og svo fer það niður í lest og þar er lyftari sem staflar þessu upp. Það er mikil erfiðisvinna sem er farin út því löndun úr svona flakatogara er umfangsmikið verkefni, það þarf mikinn mannskap til þess að setja á bretti til útflutnings. Þarna er þetta bara klárt og er tekið beint úr skipinu, sett í gám, strikamerkt og tilbúið.“

Sérhæfð hönnun

„Það er ekki óalgengur meðgöngutími um eitt ár frá því að menn byrja að spá þangað til þeir eru komnir með eitthvað í hendurnar, teikningar og búnir að tala við skipasmíðastöðvarnar. Stundum er þetta lengri tími,“ svarar Sævar aðspurður hversu langan tíma hönnunarferlið tekur.

Hann segir meðal annars áskorun í skipahönnun hversu miklar reglur gilda um þessi skip. „Það bætast stöðugt við alls konar reglur. Það þarf fullt af sérfræðingum til þess að sinna þessu, ég er nú eiginlega orðinn of gamall til að fylgjast með þessu öllu,“ segir Sævar og hlær.

„Í eðli sínu er hönnun á fiskiskipi – það sem við köllum venjulegan togara – mjög sérhæfð. Þetta eru skip sem er mjög vandasamt að hanna. Þetta er alls ekki eins og fjöldaframleiddir bátar eða flutningaskip. Þetta eru flókin skip með miklum búnaði. Fraktskip þarf aðeins að flytja vörur á milli staða en fiskiskip þarf bæði að veiða, framleiða og frakta,“ útskýrir hann og bætir við að það sé ekki einfalt að hanna þessi skip og mörg sjónarmið sem þurfi að huga að.

Sævar segir það vissulega svo að sífellt séu ný tæki og búnaður sem þarf að taka tillit til í hönnunarferlinu en þó ekki endilega þannig að það þurfi að finna upp hjólið. „Kúnstin er nú kannski stundum að kunna að nýta gamlar lausnir rétt. Nýjustu bátarnir sem við hönnum eru Páll Pálsson ÍS-102 og Breki VE-61. Það hefur mikið verið talað um skrúfuna á þeim skipum. Bara það að stækka skrúfuna um einn metra getur sparað 20 til 30% af orkunni. Það er ekkert nýtt í því, það er hundgömul þekking. Annars eru svona skip ein allsherjar málefni. Eintómar málamiðlanir að flétta saman lausnir svo vel fari.“ Ljóst er að ef bætt er við á einum stað þarf að draga úr á öðrum. „Það er ekkert ókeypis í þessu. Allar ýkjur geta verið hættulegar, það hafa allir lent í því.“

Það er margt að gerast í þróun á framdrifskerfum fyrir skip svipað og er að gerast í bílaflotanum, að sögn Sævars. Þá sé orkuþörf um borð í fiskiskipum mun meiri og mikilvægt að skera niður útblástur frá jarðeldsneyti. „Tvinn vélar og umhverfisvænna eldsneyti er í mikilli þróun og vélaframleiðendur eru að keppast við að bjóða umhverfisvænni búnað. Ausus ehf. er að smíða bát eftir okkar hönnun sem verður knúinn áfram af rafmagnsmótor, með svokölluðu diesel-electric framdrifskerfi, tilbúið fyrir rafhlöður þegar þróun á þeim hefur náð því stigi að þau séu nothæf til fiskveiða.“

Skipasmíðastöðvar uppspretta tæknimanna

Framkvæmdastjórinn það hugsanlega tækifæri í skipahönnun hér á landi, en að ríki verulegur skortur á nýliðun og mikil þekking hefur glatast í gegnum árin. „Það eru nokkur fyrirtæki eftir á Íslandi en það eru ekki margir í þessu. Við misstum út mikla uppsprettu tæknimanna í skipasmíðum þegar skipasmíðastöðvarnar þurrkuðust út. Það eru engar skipasmíðastöðvar nema þessar sem fjöldaframleiða þessa smábáta úr trefjaplasti. Það er örugglega teljandi á fingrum annarrar handar sá fjöldi skipatæknifræðinga sem hafa útskrifast á síðustu tíu árum. Þegar ég hóf störf við þetta voru þetta fjórir á hverju ári sem komu nýir inn í þetta. Þessar skipasmíðastöðvar eins og Stálvík, Þorgeir og Ellert á Akranesi og Slippstöðin á Ísafirði, Stykkishólmi, það þurfti mikið af tæknimönnum í þessar stöðvar.

Þetta eru örfáar hræður sem eftir eru og við höfum ekki mannafla til þess að taka að okkur allsherjar teiknipakka. Það þarf að klára nokkur hundruð skjöl á nokkrum mánuðum og til þess þarftu tugi tæknimanna. Þetta hefur þróast þannig á undanförnum áratugum að þessi frumhönnun á skipunum og gerð klassateikninga hefur færst frá skipasmíðastöðvunum yfir í ráðgjafarfyrirtæki. Aðallega í þessi norsku stóru fyrirtæki, Skipsteknisk og Kongsberg, þeir selja allan pakkann. Eflaust eru tækifæri fyrir einhverja innan greinarinnar, en til þess þarf þá mannaflann,“ segir Sævar.

„Hins vegar þekkjum við fiskiskipin og erum góðir í að hanna togara, ferskfisktogara sérstaklega og kunnum aðeins á frystitogara, vinnsluskip og uppsjávarskip. Þetta kunnum við og við getum hannað þessi skip og skilað gögnum sem eru nægjanleg fyrir skipasmíðastöðvar til þess að gefa verð í skipin.“

Láta íslensk verkefni duga

„Við höfum verið heppin hér hjá Skipasýn að menn hafa treyst okkur. Við höfum verið að hanna tæknilega báta hér heima en svo er alltaf eitt og eitt verkefni fyrir Rússa. Fyrir nokkrum árum vorum við með stórt verkefni fyrir félag í Bangladess. Það voru smíðaðir fimm togarar í samstarfi við Dani og Íslendinga. Við látum okkur alveg duga okkur ágætu kúnna á Íslandi og höfum nóg að gera þó við séum ekki stöðugt að teikna ný skip þó það sé gaman,“ útskýrir framkvæmdastjórinn sem bendir á að hér á landi sé aðeins lítill kjarni starfsmanna hjá fyrirtækinu.

Um aldamótin stofnaði Skipasýn félagið Shipcon í Póllandi, en aðeins fimm til tíu prósent af starfsemi þess félags tengist verkefnum Skipasýnar, að sögn Sævars. „Við stofnuðum þetta gagngert vegna þess að við sáum fram á það að yrðu engir skipatæknimenn á Íslandi.“ Hjá félaginu í Póllandi starfa um 70 starfsmenn og sinna þeir verkefnum um alla Evrópu. „Þeir starfa alveg sjálfstætt og hafa sín eigin verkefni og bjarga sér alveg án þess að við séum að mata þeim verkefni. [...] En þeir geta verið mikilvægur stuðningur við starfsemina okkar hér með því að vinna stærri teikningapakka sem fylgir því að klára hönnun á skipi, undir okkar eftirliti.“

Viðtalið við Sævar var fyrst birt í 200 mílum, sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútvegsmál, 20. desember.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 201,19 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,74 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,39 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak Örn HU 151 Grásleppunet
Grásleppa 1.072 kg
Þorskur 94 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 1.170 kg
26.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 555 kg
Ufsi 34 kg
Karfi 12 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 610 kg
26.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.844 kg
Samtals 1.844 kg
26.4.24 Hafey SK 10 Grásleppunet
Grásleppa 1.175 kg
Þorskur 109 kg
Rauðmagi 12 kg
Steinbítur 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.303 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 201,19 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,74 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,39 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak Örn HU 151 Grásleppunet
Grásleppa 1.072 kg
Þorskur 94 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 1.170 kg
26.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 555 kg
Ufsi 34 kg
Karfi 12 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 610 kg
26.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.844 kg
Samtals 1.844 kg
26.4.24 Hafey SK 10 Grásleppunet
Grásleppa 1.175 kg
Þorskur 109 kg
Rauðmagi 12 kg
Steinbítur 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.303 kg

Skoða allar landanir »