Stofnun Matvælasjóðs var kynnt í morgun og er sjóðnum ætlað að efla þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi. Stofnframlag ríkisins er 500 milljónir króna en einnig koma til um 300 milljónir króna með því að Framleiðnisjóður landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóður sjávarútvegs sameinast Matvælasjóði.
„Þetta er langþráður draumur sem er að sigla í höfn,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á kynningarfundi sem haldinn var í atvinnuvegaráðuneytinu í morgun.
Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, kynnti á fundinum stefnu sjóðsins og sagði hún hann styrkja verðmætasköpun við framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla. Þá verður við úthlutun sérstök áhersla lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og almennar aðgerðir til að auka samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, að sögn Grétu Maríu.
Fram kom í erindi formannsins að styrkir sjóðsins væru ætlaðir einstaklingum og fyrirtækjum í matvælaframleiðslu sem velta minna en 300 milljónum króna eða voru stofnuð fyrir minna en fimm árum. Þá verða veittar að hámarki þrjár milljónir í hvert verkefni og má verkefnið ekki vara lengur en sex mánuði.
Frumvarp ráðherra er sneri að stofnun sjóðsins var lagt fram í apríl í kjölfar þess að ákveðið var í ríkisstjórn að hrinda í framkvæmd aðgerðum til að mæta áhrifum kórónuveirufaraldursins, en í því fólst meðal annars stofnframlag til Matvælasjóðs.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |