„Mælingin er ekki marktæk“

Binni í Vinnslustöðinni óttast ekki að loðnubrestur verði þriðja árið …
Binni í Vinnslustöðinni óttast ekki að loðnubrestur verði þriðja árið í röð og kveðst sannfærður um að loðna finnist í janúar. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

„Það verður loðna, þeir hafa bara ekki fundið hana. Við getum alveg verið rólegir, það finnst loðna,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í samtali við 200 mílur inntur álits á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um að ekki verði loðnuveiðar á vertíðinni 2020/2021, sem tilkynnt var á vef stofnunarinnar í dag.

Samkvæmt heimildum 200 mílna stendur nú yfir fundur þar sem Hafrannsóknastofnun fer yfir ráðgjöf stofnunarinnar með fulltrúum útgerðanna.

„Ungloðnumælingar í fyrra voru góðar og gáfu okkur ástæðu til að vera bjartsýnir,“ segir Binni sem kveðst sannfærður um að verði af loðnuvertíðinni. „Það var talsverður ís yfir svæðinu þannig að mælingin er ekki marktæk. Þannig að við erum bara bjartsýnir.“

Er hann með orðum sínum að vísa til þess að Hafrannsóknastofnun hafi sjálf greint frá því í tilkynningu sinni að hafís á norðanverðu rannsóknarsvæðinu hindraði að hluta áætlaða yfirferð. „Því gæti verið um að ræða vanmat á magni kynþroska stofnhlutans, en ekki er unnt að meta umfang þess,“ segir í tilkynningunni.

„Það verður vertíð. Við finnum hana (loðnuna) í janúar,“ segir Binni að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg
26.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.393 kg
Þorskur 97 kg
Samtals 1.490 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg
26.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.393 kg
Þorskur 97 kg
Samtals 1.490 kg

Skoða allar landanir »