Erfitt að horfa á upp á veika skipverja við vinnu

Arnar Hilmarsson í viðtalinu.
Arnar Hilmarsson í viðtalinu. Skjáskot af vef Rúv

Háseti á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni segir að það hafi verið erfitt að horfa á upp á  veika skipverja vera við vinnu. Hann segir í samtali við Rúv að eftir að skipverjunum var tilkynnt um smitið hafi þeim verið sagt að halda áfram að vinna. 

Rætt var við Arnar Hilmarsson í kvöldfréttum Sjónvarps. Arnar, sem er 21 árs gamall, er einn af þeim 22 skipverjum sem veiktust, en alls voru 25 um borð í togaranum. 

Aðspurður greinir Arnar frá því að hann hafi fundið fyrir einkennum, þ.e.a.s. svima, hausverk, hálsbólgu og hósta. 

„Sá sem varð veikastur er einn harðasti maður, sem ég veit um, og hann lét sig hafa það í einhverjar þrjár vaktir að vinna veikur. Svo var hann einfaldlega orðinn svo slæmur að hann bara gat það mögulega ekki. Það var bara erfitt að horfa upp á hann færa sig upp af bekknum og upp í sjúkraklefa,“ sagði Arnar í samtali við Rúv. 

Hann sagði ennfremur, að þar sem skipstjórinn hefði haft samband sóttvarnalækni í byrjun túrsins þá hafi menn talið að allt væri gert í samráði við hann.

Arnar segir í viðtalinu að skipverjarnir séu sammála um að það hafi verið brotið á þeim. Það sé alvarlegt að halda veikum mönnum við vinnu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »