Ekki ljóst hvort allir nái heilsu á ný

Júlíus Geirmundsson ÍS 270.
Júlíus Geirmundsson ÍS 270. Ljósmynd/Kristján G. Jóhannsson

„Nú er liðið vel á þriðja mánuð frá því þessari örlagaríku veiðiferð lauk og þrátt fyrir batnandi heilsu flestra skipverja á það ekki við um alla, en of snemmt er að segja til um hvort allir nái fullri heilsu á ný,“ segir í frétt á vef Verkalýðsfélags Vestfjarða um veiðiferð sem skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni fóru í.

„Allir sem að málinu koma gera sitt besta til að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur, en ekki er hægt að líta fram hjá því að hvorki er um slys né veikindi af eðlilegum orsökum að ræða. Teknar voru rangar ákvarðanir sem ollu skipverjum alvarlegum skaða. Samfélagslegur kostnaður af þessu er nú þegar orðinn gífurlegur sem og fjárhagsskaði útgerðar. Álitshlekkur fyrir svæðið í heild sinni verður ekki metinn til fjár,“ segir enn fremur á vef verkalýðsfélagsins.

Skipstjórinn á Júlíusi Geirmundssyni játaði sök í málinu fyrir Héraðsdómi Vestfjarða á fimmtudag.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur ekki enn upplýsingar frá fyrstu hendi varðandi málið, en samkvæmt upplýsingum félagsins var skipstjórinn dæmdur til vægrar sektargreiðslu og missi skipstjórnarréttinda í fjóra mánuði.

Skipverjum er mjög létt við að málinu sé að ljúka, en óvissan hefur verið skipverjum þungbær. Að því gefnu að upplýsingar félagsins séu réttar er allur vafi tekinn af varðandi réttarstöðu þeirra skipverja sem staðið hafa í veikindum í veiðiferðinni og í kjölfar hennar, en útgerð er ábyrg fyrir ákvörðunum skipstjóra valdist skaði af, segir á vef verkalýðsfélagsins.

„Skipverjar sem hafa haft samband við félagið eru mjög undrandi á því að þeir hafi gengið gegnum tímabil þar sem þeir töldu lífi og heilsu ógnað, og sjá svo að refsingin sem skipstjórinn er dæmdur til sé ekki ólík refsingu fyrir samlokustuld í Krónunni. Það sem minna er í dagsljósinu er sú þjáning sem skipstjórinn hefur orðið fyrir vegna sinna mistaka, ekki ásetningsbrots, heldur mistaka og dómgreindarleysis. Í þessu máli hafa allir tapað og er það von félagsins að íslenskir sjómenn þurfi aldrei að upplifa slíkt um ókomna tíð,“ segir að lokum.

RÚV greindi fyrst frá færslunni á vef Verkalýðsfélags Vestfjarða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »