Komið hefur verið á reglulegu samráði milli Íslands og Bretlands á sviði sjávarútvegsmála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í samkomulagi um framtíðarsamstarf Íslands og Bretlands í sjávarútvegsmálum sem Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegráðherra, og kollegi hans Victoria Prentis, sjávarútvegsráðherra Bretlands, undirrituðu í dag.
„Á hinum nýja samráðsvettvangi verða ekki samþykktar bindandi fiskveiðistjórnunarreglur, enda eru engir sameiginlegir fiskistofnar sem eingöngu finnast innan lögsagna Íslands og Bretlands,“ segir í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.
Tilgangur samráðsins er sagt vera að „viðhalda og efla gott samstarf ríkjanna á sviði sjávarútvegs eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu“. Þá munu íslenskir og breskir fulltrúar funda árlega til að viðhalda nánum tengslum og ræða leiðir til að efla samstarf tengt sjávarútvegi.
Efla á samstarf „milli stjórnvalda, milli atvinnugreinarinnar í löndunum tveimur, milli rannsóknastofnana og með hverjum þeim öðrum hætti sem mun verða ríkjunum sameiginlega til framdráttar“.
Sambærilegt samkomulag var gert við Færeyinga í októberlok.
Stefnt er að því að nýta vettvanginn til samstarfs „á flestum sviðum sjávarútvegs og tengdum greinum, svo sem skipti á reynslu og þekkingu á sviði fiskveiðistjórnunar, hafrannsókna, útgerðar, fiskvinnslu og nýsköpunar“.
Mun samstarfið ná til sameiginlegra verkefna og til samráðs vegna starfs alþjóðastofnana svo sem Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Þótt samstarfið verði byggt á samstarfi og samráði milli stjórnvalda í ríkjunum tveimur verður einnig áhersla á að efla samstarf fyrirtækja, rannsóknastofnana og ýmissa annarra aðila sem ekki eru á vegum ríkisins.
Í inngangi samkomulagsins er lögð áhersla á mikilvægi sjálfbærra fiskveiða sem byggja á bestu vísindalegu ráðgjöf, sem leiðarljósi beggja landa þegar kemur að málefnum hafsins. Þá er samstarfsyfirlýsing Íslands og Bretlands um sameiginlega sýn ríkjanna fyrir 2030, sem undirrituð var í maí á þessu ári, lögð til grundvallar samkomulagsins.