Sigtryggur Sigtryggsson
Á dögunum var varðskipið Týr tekið niður úr Slippnum í Reykjavík, þar sem það hafði verið í rúman mánuð. Unnið var að viðgerðum og greining gerð á skemmdum. Týr liggur nú við Faxagarð í Gömlu höfninni.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var lokað fyrir skutpípu annarrar skrúfu skipsins og er því aðeins önnur aðalvél þess í lagi.
„Tekin hefur verið ákvörðun um að skipið verði lagað til bráðabirgða svo það geti að einhverju leyti gagnast í sumar meðan beðið er eftir varðskipinu Freyju. Þá er einnig ljóst að skipið verður ekki notað yfir vetrarmánuðina í núverandi ástandi,“ segir Ásgeir í Morgunblaðinu í dag.
Þegar Týr var tekinn upp í Slippinn í Reykjavík í janúar kom í ljós alvarleg bilun í aðalvél skipsins. Landhelgisgæslan átti ekki nauðsynlega varahluti, smíði þeirra talin tímafrek og ljóst að ekki yrði um varanlega viðgerð að ræða. Einnig kom í ljós við slipptöku Týs í janúar að tveir af tönkum skipsins eru ónýtir sökum tæringar og sjókælikerfi skipsins lekur. Slíkur leki var talinn ógna öryggi skips og áhafnar. Því var ljóst að grípa varð til skjótra viðbragða. Sem kunnugt er tók ríkisstjórnin þá ákvörðun á fundi sínum 5. mars sl., þegar þessi staða varð ljós, að kaupa notað skip sem komi í stað Týs við gæslustörf. Nýja skipið mun fá nafnið Freyja.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 607,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 382,51 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 278,20 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 305,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Sævík GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 16.879 kg |
Hlýri | 195 kg |
Keila | 152 kg |
Karfi | 23 kg |
Steinbítur | 12 kg |
Ýsa | 7 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 17.273 kg |
20.9.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 26.825 kg |
Ýsa | 12.604 kg |
Skarkoli | 1.693 kg |
Steinbítur | 784 kg |
Ufsi | 548 kg |
Sandkoli | 375 kg |
Þykkvalúra | 373 kg |
Karfi | 315 kg |
Skötuselur | 276 kg |
Hlýri | 146 kg |
Langa | 61 kg |
Keila | 13 kg |
Langlúra | 7 kg |
Blálanga | 6 kg |
Djúpkarfi | 2 kg |
Samtals | 44.028 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 607,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 382,51 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 278,20 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 305,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Sævík GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 16.879 kg |
Hlýri | 195 kg |
Keila | 152 kg |
Karfi | 23 kg |
Steinbítur | 12 kg |
Ýsa | 7 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 17.273 kg |
20.9.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 26.825 kg |
Ýsa | 12.604 kg |
Skarkoli | 1.693 kg |
Steinbítur | 784 kg |
Ufsi | 548 kg |
Sandkoli | 375 kg |
Þykkvalúra | 373 kg |
Karfi | 315 kg |
Skötuselur | 276 kg |
Hlýri | 146 kg |
Langa | 61 kg |
Keila | 13 kg |
Langlúra | 7 kg |
Blálanga | 6 kg |
Djúpkarfi | 2 kg |
Samtals | 44.028 kg |