Síma Páls stolið á meðan hann lá í öndunarvél

Páll Steingrímsson hefur birt greinar þar sem hann ver málstað …
Páll Steingrímsson hefur birt greinar þar sem hann ver málstað Samherja. Samsett mynd

Síma Páls Steingrímssonar, sem kenndur er við „skæruliðadeild Samherja“, var stolið af honum á meðan hann lá á milli heims og helju á sjúkrahúsi. Þetta staðfestir Garðar Gíslason, lögmaður Samherja, í samtali við 200 mílur. 

„Páll var alvarlega veikur, svo veikur að hann var í öndunarvél. Á meðan hann er í því ástandi, þá er símanum hans stolið,“ segir Garðar. 

Veiktist Páll alvarlega í byrjun mánaðar og var lagður inn á Sjúkrahúsið á Akureyri. Reyndust veikindi hans svo alvarleg að hann var fluttur með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík. 

Páll er enn að jafna sig á veikindunum að sögn Garðars.

Páll lá þungt haldinn á sjúkrahúsi þegar síma hans var …
Páll lá þungt haldinn á sjúkrahúsi þegar síma hans var stolið. Á myndinni er einnig sonur Páls. Ljósmynd/Aðsend

Stundin og Kjarninn hafa undanfarna daga fjallað um samskipti svokallaðrar „skæruliðadeildar Samherja“. Um er að ræða hóp starfsmanna Samherja sem ræddu sín á milli greinaskrif og annað tengt umfjöllun um Samherja eftir þátt Kveiks um starfsemi Samherja í Namibíu. 

Páll hefur birt nokkrar greinar þar sem hann hefur komið fyrirtækinu Samherja til varnar sem og gert það á ýmsum spjallþráðum. 

Þjófnaður á síma Páls hefur verið kærður til lögreglu og er til skoðunar þar að sögn Garðars. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 7.6.23 491,72 kr/kg
Þorskur, slægður 7.6.23 526,47 kr/kg
Ýsa, óslægð 7.6.23 426,16 kr/kg
Ýsa, slægð 7.6.23 386,18 kr/kg
Ufsi, óslægður 7.6.23 246,30 kr/kg
Ufsi, slægður 7.6.23 230,64 kr/kg
Djúpkarfi 5.6.23 124,00 kr/kg
Gullkarfi 7.6.23 394,19 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 7.6.23 199,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.6.23 Sæfinnur Handfæri
Þorskur 357 kg
Samtals 357 kg
7.6.23 Elley EA-250 Þorskfisknet
Ufsi 115 kg
Samtals 115 kg
7.6.23 Ingi Putti Handfæri
Þorskur 433 kg
Samtals 433 kg
7.6.23 Nunni EA-087 Handfæri
Þorskur 78 kg
Samtals 78 kg
7.6.23 Elín ÞH-082 Handfæri
Þorskur 784 kg
Samtals 784 kg
7.6.23 Hafaldan EA-190 Handfæri
Þorskur 481 kg
Samtals 481 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 7.6.23 491,72 kr/kg
Þorskur, slægður 7.6.23 526,47 kr/kg
Ýsa, óslægð 7.6.23 426,16 kr/kg
Ýsa, slægð 7.6.23 386,18 kr/kg
Ufsi, óslægður 7.6.23 246,30 kr/kg
Ufsi, slægður 7.6.23 230,64 kr/kg
Djúpkarfi 5.6.23 124,00 kr/kg
Gullkarfi 7.6.23 394,19 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 7.6.23 199,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.6.23 Sæfinnur Handfæri
Þorskur 357 kg
Samtals 357 kg
7.6.23 Elley EA-250 Þorskfisknet
Ufsi 115 kg
Samtals 115 kg
7.6.23 Ingi Putti Handfæri
Þorskur 433 kg
Samtals 433 kg
7.6.23 Nunni EA-087 Handfæri
Þorskur 78 kg
Samtals 78 kg
7.6.23 Elín ÞH-082 Handfæri
Þorskur 784 kg
Samtals 784 kg
7.6.23 Hafaldan EA-190 Handfæri
Þorskur 481 kg
Samtals 481 kg

Skoða allar landanir »