Kaupa meirihluta í eldisfyrirtækinu Hábrún

Jón Garðar Guðmundsson frá Mar Advisors, Haukur Oddsson og Einar …
Jón Garðar Guðmundsson frá Mar Advisors, Haukur Oddsson og Einar Guðmundsson frá Hábrún og Hrafn Árnason frá ÍV sjóðum og Björgvin Gestsson frá Íslenskum verðbréfum. Ljósmynd/ÍSEF

ÍV SIF Equity Farming ehf. (ÍSEF) hefur fest kaup á meirihluta í fiskeldisfyrirtækinu Hábrún ehf. sem stundar eldi í Ísafjarðardjúpi. Ekki er um að ræða fyrstu fjárfestinguna í eldi en ÍSEF tilkynnti í mars að félagið hefði eignast meirihluta í ÍS 47 ehf. sem einnig starfrækir eldi í Ísafjarðardjúpi.

„ÍV SIF Equity Farming ehf. er eignarhaldsfélag í eigu hóps íslenskra fjárfesta sem hefur að meginmarkmiði að byggja upp eignasafn í fiskeldi og tengdri starfsemi,“ segir í tilkynningu frá ÍSEF. Þá segir að Hábrún sé frumkvöðull í fiskeldi í Ísafjarðardjúpi og vísað til þess að fyrirtækið og fyrirrennarar þess hafi stundað fiskeldi frá 1996. „Félagið er í dag öflugt fiskeldisfyrirtæki sem hyggur á aukin umsvif.“

Halldór Gunnlaugsson.
Halldór Gunnlaugsson. Ljósmynd/ÍSEF

Halldór Gunnlaugsson, frá Hólmavík, mun verða nýr framkvæmdastjóri Hábrúnar en fyrir er hann framkvæmdastjóri ÍS 47 og mun hann halda áfram í því starfi. Halldór hefur áður starfað sem fjármálastjóri Arnarlax og er löggiltur endurskoðandi. Þá hefur hann einnig starfað hjá KPMG og Grant Thornton með áherslu á sjávarútveg og fjármálafyrirtæki.

„Starfsemi Hábrúnar hefur þróast undanfarin ár og kemur til með að þróast enn frekar næstu misseri. Við stefnum að því að efla fyrirtækið og starfsemi þess til muna og fögnum þeim áfanga sem náðist með aðkomu öflugs hóps íslenskra fjárfesta að félaginu. Það er lykilatriði í okkar áætlunum,“ segir Halldór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »