Landeldi fær hringrásarstyrk til gerðar áburðar

Landeldi hf. hefur hafið byggingu 33 þúsund tonna leaxeldisstöðvar skammt …
Landeldi hf. hefur hafið byggingu 33 þúsund tonna leaxeldisstöðvar skammt frá Þorlákshöfn. Unnið er að því að þróa leiðir til að nýta úrgang franmleiðslunnar í gerð áburðar fyrir landbúnað. Mynd/Landeldi hf.

Landeldi hf. hefur hlotið 20 milljón króna styrk frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið vegna þróunarverkefnis er snýr að gerð lífræns áburðar fyrir landbúnað úr þeim úrgangi sem til fellur  laxeldi. Fyrirtækið stefnir á framleiðslu 33.500 tonnum af laxi í landeldisstöð sinni sem nú er í byggingu vestan við Þorlákshöfn.

Fram kemur á vef ráðuneytisins að styrkveitingin, sem átti sér stað 15. júlí síðastliðinn, kom til vegna úthlutunar úr sjóði til verkefna sem stuðla að eflingu hringrásarhagkerfis á Ísland. Alls var úthlutað 230 milljónum.

Markmið með styrkveitingunum er meðal annars að draga úr myndun úrgangs, efla tækifæri til endurvinnslu úrgangs sem næst upprunastað og stuðla að aukinni endurvinnslu og annarri endurnýtingu úrgangs sem fellur til hér á landi.

„Við lítum á þessa styrkveitingu sem viðurkenningu á því að Landeldi er á réttri leið með sína nálgun að umhverfisvænni matvælaframleiðslu,“ segir Þorvaldur Arnarsson, verkefnastjóri hjá Landeldi hf., um styrkinn í færslu sem birt er á vef Þekkingarseturs Ölfuss.

„Umhverfissjónarmið vega gríðarþungt í framtíðarsýn Landeldis og frá upphafi hefur það verið okkar staðfasta stefna að koma auga á þær leiðir sem okkur eru færar til að efla hringrásina innan bláa hagkerfisins. Við höfum leitað allra leiða til að besta allar framkvæmdir og alla ferla til að ná því sem næst jákvæðu kolefnisspori. Með því að endurnýta úrgang úr laxeldinu okkar með þessum hætti viljum við styðja við hringrásarhagkerfið, og ekki síður bændasamfélagið. Landbúnaðarsamfélagið hefur átt á brattan að sækja undanfarið og ekki sér fyrir endann á því enn, og það helgast ekki síst af himinháu verði áburðar sem bændur eru nauðbeygðir til að kaupa á hærra verði en sést hefur nokkru sinni áður. Við teljum okkur geta orðið að liði þarna með því að taka höndum saman við bændasamfélagið í nærbyggð til að framleiða innlendan gæðaáburð úr því sem hingað til hefur einfaldlega verið losað í sjó eða urðað,“ segir hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »