Eitt heitasta par landsins, áhrifavaldarnir Edda Falak og Binni Löve, skelltu sér norður á Akureyri um helgina. Vörðu þau stórum hluta helgarinnar við brettaiðkun í Hlíðarfjalli en Norðurland er í miklum vetrarham um þessar mundir.

Edda og Binni voru dugleg að deila myndum úr ferðinni á samfélagsmiðlum en þau fá greinilega ekki nóg af fjallinu. Ekki eru nema tvær vikur síðan þau voru stödd á Akureyri með stórum hópi í þeim tilgangi að renna sér á brettum.
Íslendingar eru vanir að flykkjast í Alpana á skíði á veturna. Fáir eru í þeim hugleiðingum í ár vegna kórónuveirufaraldursins en ljóst er að ferð norður á land er ekki síðri kostur.