Teipuð á forsíðunni eins og Kardashian

Fatastíllinn | 21. júlí 2022

Teipuð á forsíðunni eins og Kardashian

Tónlistarkonan Lizzo fékk lánaðan kafla úr tískubók raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian á dögunum þegar hún sat fyrir innteipuð í Balenciagateipi. Teipuð Lizzo prýðir forsíðu Elle tímaritsins í Bretlandi í ágúst.

Teipuð á forsíðunni eins og Kardashian

Fatastíllinn | 21. júlí 2022

Lizzo klæddist Balenciaga teipi á forsíðu Elle.
Lizzo klæddist Balenciaga teipi á forsíðu Elle. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Lizzo fékk lánaðan kafla úr tískubók raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian á dögunum þegar hún sat fyrir innteipuð í Balenciagateipi. Teipuð Lizzo prýðir forsíðu Elle tímaritsins í Bretlandi í ágúst.

Tónlistarkonan Lizzo fékk lánaðan kafla úr tískubók raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian á dögunum þegar hún sat fyrir innteipuð í Balenciagateipi. Teipuð Lizzo prýðir forsíðu Elle tímaritsins í Bretlandi í ágúst.

Kardashian vakti talsverða athygli í mars á þessu ári þegar hún mætti innteipuð á tískusýningu Balenciaga á tískuvikunni í París í mars á þessu ári. 

Líkt og Kardashian virðist Lizzo líka hafa glímt við skerta hreyfigetu svona innteipuð en hún birti myndband af sér þar sem hún reyndi að hreyfa sig á Instagram. 

„Ég er fáránleg manneskja. Hlustið bara á About Time og ekki spyrja neinna spurninga,“ skrifaði Lizzo við myndband af sér gera heiðarlega tilraun til þess að dansa við lagið sitt.

View this post on Instagram

A post shared by Lizzo (@lizzobeeating)

Innihalds viðtalsins snerist þó ekki um það hversu fáránleg manneskja hún væri heldur um sjálfsást og vegferð hennar að því að elska sjálfa sig. 

„Það eru milljónir manna að ganga í gegnum það sama ég, og hafa ekki vettvang eins og ég, ekki baklandið, fjárhagslega frelsi eða aðgang að þjónustu til að láta sér líða betur,“ sagði Lizzo. 

Söngkonan ræddi einnig um nýja aðhaldsfatalínu sína en með henni vill hún breyta því hvernig fólk hugsar um aðhaldsföt. 

View this post on Instagram

A post shared by ELLE UK (@elleuk)

mbl.is