Systurnar stálu senunni á „Óskarsverðlaunum tískunnar“

Fatastíllinn | 8. nóvember 2022

Systurnar stálu senunni á „Óskarsverðlaunum tískunnar“

Hin árlegu CFDA-tískuverðlaun voru afhent í New York-borg í gær, mánudag. Þangað mættu stórstjörnurnar sem voru hver annarri glæsilegri, enda hefur viðburðurinn oft verið kallaður „Óskarsverðlaun tískunnar“. 

Systurnar stálu senunni á „Óskarsverðlaunum tískunnar“

Fatastíllinn | 8. nóvember 2022

Kardashian-Jenner systurnar voru glæsilegar á CFDA tískuverðlaunahátíðinni.
Kardashian-Jenner systurnar voru glæsilegar á CFDA tískuverðlaunahátíðinni. Samsett mynd

Hin árlegu CFDA-tískuverðlaun voru afhent í New York-borg í gær, mánudag. Þangað mættu stórstjörnurnar sem voru hver annarri glæsilegri, enda hefur viðburðurinn oft verið kallaður „Óskarsverðlaun tískunnar“. 

Hin árlegu CFDA-tískuverðlaun voru afhent í New York-borg í gær, mánudag. Þangað mættu stórstjörnurnar sem voru hver annarri glæsilegri, enda hefur viðburðurinn oft verið kallaður „Óskarsverðlaun tískunnar“. 

Í ár var þema kvöldsins „klassískur kvöldglamúr“ og áttu gestirnir ekki í neinum vandræðum með það enda mikið um glit og glamúr. Smartland tók saman nokkrar af best klæddu stjörnunum frá tískuverðlaununum. 

Systurnar vöktu mikla lukku

Það er óhætt að segja að Kardashian-Jenner-systurnar hafi stolið senunni í ár, en þær voru stórglæsilegar að vanda og vöktu því mikla athygli. Kylie Jenner dró fram plíseraðan kjól úr haustlínu Thierrys Muglers frá árinu 1999 en Kim Kardashian klæddist latexkjól frá Dolce & Gabbana. 

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner í kjól frá Thierry Mugler …
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner í kjól frá Thierry Mugler úr haustlínunni 1999. AFP
Leikkonan Katie Holmes og hönnuðurinn Jonathan Simkhai. Holmes klæddist glæsilegum …
Leikkonan Katie Holmes og hönnuðurinn Jonathan Simkhai. Holmes klæddist glæsilegum kjól frá Simkhai. AFP
Kim Kardashian hlaut Amazon Innovation verðlaunin, en hún klæddist latex …
Kim Kardashian hlaut Amazon Innovation verðlaunin, en hún klæddist latex kjól frá Dolce & Gabbana. AFP
Ofurfyrirsætan Kendall Jenner í stórkostlegum kjól frá Khaite.
Ofurfyrirsætan Kendall Jenner í stórkostlegum kjól frá Khaite. AFP
Hönnuðirnir Tommy Hilfiger and Dee Ocleppo voru stílhrein.
Hönnuðirnir Tommy Hilfiger and Dee Ocleppo voru stílhrein. AFP
Khloé Kardashian vakti mikla athygli í kjól frá LaQuan Smith, …
Khloé Kardashian vakti mikla athygli í kjól frá LaQuan Smith, enda glæsileg. AFP
Grátt hár fyrirsætunnar Juliu Fox vakti mikla lukku.
Grátt hár fyrirsætunnar Juliu Fox vakti mikla lukku. AFP
Halle Bailey, Wes Gordon og Adria Arjona voru glæsileg.
Halle Bailey, Wes Gordon og Adria Arjona voru glæsileg. AFP
Ugbad Abdi klæddist Michael Kors.
Ugbad Abdi klæddist Michael Kors. AFP
Söngkonan Cher mætti í kjól frá Chrome Hearts.
Söngkonan Cher mætti í kjól frá Chrome Hearts. AFP
Tayshia Adams, Stacey Bendet og Addison Rae.
Tayshia Adams, Stacey Bendet og Addison Rae. AFP
mbl.is