Leikkonan Kerry Washington var miðpunktur athyglinnar á American Black Film-verðlaunahátíðinni um liðna helgi þegar hún klæddist kjól af söngkonunni Whitney Houston.

Kjóllinn sem Washington klæddist er rauður og frá Marc Bouwer. Klæddist Houston honum þegar hún mætti á galakvöld BET árið á 1996.
„Engar lygar hér. Þetta er í alvöru kjóllinn sem Whitney Houston klæddist. Svo ótrúlega einstakt,“ skrifaði Washington við myndband af sér í kjólnum á Instagram.
Washington er hvað þekktust fyrir að hafa farið með aðalhlutverk í þáttunum Scandal.
Houston þarf varla að kynna til sögunnar en hún átti glæstan feril í tónlistarheiminum og er af mörgum talin besta söngkona sem uppi hefur verið. Hún lést 11. febrúar árið 2012, 48 ára að aldri.