„Nuddið á ykkur brjóstin“

Frægir fjölga sér | 19. maí 2023

„Nuddið á ykkur brjóstin“

Tónlistarkonan Rihanna birti eldheitar óléttumyndir af sér á Instagram í gær. Stjarnan sem á von á sínu öðru barni var þó ekki að birta nýlegar myndir eins og margir héldu í fyrstu. 

„Nuddið á ykkur brjóstin“

Frægir fjölga sér | 19. maí 2023

Tónlistarkonan Rihanna birti glæsilega myndaseríu á Instagram sem hefur vakið …
Tónlistarkonan Rihanna birti glæsilega myndaseríu á Instagram sem hefur vakið mikla athygli. Samsett mynd

Tónlistarkonan Rihanna birti eldheitar óléttumyndir af sér á Instagram í gær. Stjarnan sem á von á sínu öðru barni var þó ekki að birta nýlegar myndir eins og margir héldu í fyrstu. 

Tónlistarkonan Rihanna birti eldheitar óléttumyndir af sér á Instagram í gær. Stjarnan sem á von á sínu öðru barni var þó ekki að birta nýlegar myndir eins og margir héldu í fyrstu. 

Rihanna ákvað að birta myndirnar í tilefni af afmæli sonar síns, RZA Athelston Mayers, sem hún á með rapparanum A$AP Rocky, en hann varð eins árs gamall hinn 13. maí síðastliðinn. 

„Hér er smá sería sem ég kalla: Nuddið á ykkur brjóstin.“ „Til að fagna fyrstu meðgöngunni og þeim töfrum sem þessi líkami er að og hefur skapað. Elsku RZA, þarna inni hafðir þú ekki hugmynd um hversu galin mamma þín er og hversu gagntekin ég yrði,“ skrifaði Rihanna við færsluna.

Mynd­irnar hafa vakið mikla at­hygli og aðeins tólf tím­um eft­ir að hún birti þær hafa tæplega tíu millj­ón­ir lækað við færsluna.

View this post on Instagram

A post shared by badgalriri (@badgalriri)

mbl.is