Minna kolefnisspor Landsvirkjunar

Umhverfisvitund | 30. ágúst 2023

Minna kolefnisspor Landsvirkjunar

Kolefnisspor Landsvirkjunar, það er losun að frádreginni kolefnisbindingu, var um 2.800 tonn CO2-ígilda á fyrri helmingi ársins og minnkaði þar með um 54 prósent milli ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.

Minna kolefnisspor Landsvirkjunar

Umhverfisvitund | 30. ágúst 2023

Kolefnisspor Landsvirkjunar hefur minnkað umtalsvert síðan í fyrra.
Kolefnisspor Landsvirkjunar hefur minnkað umtalsvert síðan í fyrra. Ljósmynd/Landsvirkjun

Kolefnisspor Landsvirkjunar, það er losun að frádreginni kolefnisbindingu, var um 2.800 tonn CO2-ígilda á fyrri helmingi ársins og minnkaði þar með um 54 prósent milli ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.

Kolefnisspor Landsvirkjunar, það er losun að frádreginni kolefnisbindingu, var um 2.800 tonn CO2-ígilda á fyrri helmingi ársins og minnkaði þar með um 54 prósent milli ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.

Segir þar enn fremur að kolefnisspor á orkueiningu hafi verið 0,38 gCO2-ígildi á kílóvattstund og dregist saman um 55 prósent frá fyrra ári. Hefur það þar með aldrei verið minna síðan byrjað var að halda loftslagsbókhald hjá fyrirtækinu.

Eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningunni eru framangreindar tölur í samræmi við loftslagsáætlun Landsvirkjunar og markmið hennar um kolefnishlutleysi árið 2025.

Undir losunarþaki

„Þá hefur losun gróðurhúsalofttegunda á orkueiningu frá starfsemi okkar ekki verið minni síðan fyrirtækið byrjaði að halda bókhald um losun. Hún dróst saman um 15% á milli ára og var 2,8 gCO2íg/kWst á fyrri árshelmingi 2023,“ segir svo.

Eru þessar tölur undir því losunarþaki sem skilgreint er í loftslags- og umhverfisstefnu Landsvirkjunar, að því er segir í tilkynningunni og með því minnsta sem þekkist í orkuvinnslu heimsins. „Til samanburðar getur raforkuvinnsla talist sem mótvægisaðgerð gegn loftslagsbreytingum í flokkunarreglugerð ESB ef losunin er undir 100 gCO2íg/kWst.“

Heildarlosun 20.700 tonn

Heildarlosun frá starfsemi fyrirtækisins á tímabilinu nam um 20.700 tonnum CO2-ígilda og dróst saman um 12 prósent frá sama tímabili árið áður. Samdráttinn má að mestu rekja til mikils samdráttar í losun frá jarðvarma sem helgast að mestu leyti af  minni orkuvinnslu frá Kröflustöð.

Losun vegna bruna jarðefnaeldsneytis minnkaði um 18 prósent á milli ára. „Við vinnum markvisst að því að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir hreinorku á bifreiðum og tækjum í okkar eigu og stefnum á að hætta að kaupa jarðefnaeldsneyti árið 2030,“ segir að lokum.

mbl.is