Meirihluti andvígur gjaldtöku á nagladekk

Umhverfisvitund | 4. desember 2023

Meirihluti andvígur gjaldtöku sveitarfélaga á nagladekk

57% eru andvíg því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk. Þetta kemur fram í könnun Prósents sem framkvæmd var 9.-17.nóvember.

Meirihluti andvígur gjaldtöku sveitarfélaga á nagladekk

Umhverfisvitund | 4. desember 2023

57% eru andvíg því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á …
57% eru andvíg því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

57% eru andvíg því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk. Þetta kemur fram í könnun Prósents sem framkvæmd var 9.-17.nóvember.

57% eru andvíg því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk. Þetta kemur fram í könnun Prósents sem framkvæmd var 9.-17.nóvember.

Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) ert þú því að þitt sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk? Gerir þú ráð fyrir að vera með nagladekk undir bílnum/bílunum þínum í vetur? 

Niðurstöður sýna að 57% svarenda eru andvíg, 16% svara hvorki né og 27% eru hlynnt því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru minna andvíg gjaldtökunni en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Íbúar Mosfellsbæjar, Hafnarfjarðar og Reykjavíkur eru minna andvíg því að þeirra sveitarfélag leggi gjald á þau sem nota nagladekk en íbúar Garðabæjar og Akureyrar.

55% svarenda gera ráð fyrir að vera með nagladekk undir bíl sínum í vetur, 45% gera ekki ráð fyrir því. Um 41% íbúa höfuðborgarsvæðisins gera ráð fyrir að vera með nagladekk undir bílnum/bílunum sínum í vetur og 72% íbúar landsbyggðarinnar.

Mikill munur er á viðhorfi gagnvart gjaldtöku eftir því hvort einstaklingar geri ráð fyrir að nota nagladekk í vetur eða ekki. Um 80% þeirra sem gera ráð fyrir að nota nagladekk eru andvíg, um 32% þeirra sem gera ekki ráð fyrir að nota nagladekk eru andvíg og um 34% þeirra sem eiga ekki bíl eru andvíg.

Úrtakið var 1.850 manns, 18 ára og eldri, og var svarhlutfallið 51%.

mbl.is