Bæta við bílum og vinna upp tafir

Umhverfisvitund | 16. ágúst 2023

Bæta við bílum og vinna upp tafir

Sorphirðubílum við hirðu á pappír og plasti hjá Sorphirðu Reykjavíkur hefur fjölgað um þrjá og því gengur vel að vinna upp þær tafir sem orðið hafa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Bæta við bílum og vinna upp tafir

Umhverfisvitund | 16. ágúst 2023

Sorphirða í Reykjavík hefur gengið betur í þessari viku heldur …
Sorphirða í Reykjavík hefur gengið betur í þessari viku heldur en undanfarið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sorphirðubílum við hirðu á pappír og plasti hjá Sorphirðu Reykjavíkur hefur fjölgað um þrjá og því gengur vel að vinna upp þær tafir sem orðið hafa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Sorphirðubílum við hirðu á pappír og plasti hjá Sorphirðu Reykjavíkur hefur fjölgað um þrjá og því gengur vel að vinna upp þær tafir sem orðið hafa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Sorphirða í Reykjavík hefur gengið betur í þessari viku heldur en undanfarið, meðal annars vegna þess að hirðubílum hefur fjölgað og fleiri eru við störf að sögn borgarinnar. 

Hirðutíðni á plasti og pappír á áætlun eftir tvær vikur

Hirða á blönduðu sorpi og matarafgöngum er á áætlun og vonir standa til þess að hirðutíðni á pappír og plasti verði komin á áætlun eftir tvær vikur, með tveggja vikna hirðutíni. 

Hirða á pappír og plasti í Grafarvogi verður að öllum líkindum lokið þann 17. ágúst og þá hefst hirða á plasti og pappír í Vesturbæ. 

Íbúar hvattir til að ganga vel um tunnur

Íbúar eru áfram hvattir sérstaklega til að ganga vel um tunnur undir pappír og plast og brjóta vel saman umbúðir svo þær rúmist betur í tunnunum. Þá segir að gott sé að fara með viðamiklar umbúðir á grenndar- og endurvinnslustöðvar.

Upplýsingar um framgang hirðunnar má finna á vefsíðu fyrir sorphirðudagatal í Reykjavík.

mbl.is