Tunnuskiptum lokið í Reykjavík

Umhverfisvitund | 11. september 2023

Tunnuskiptum lokið í Reykjavík

Tunnuskiptum vegna nýs flokkunarkerfis sorphirðu er lokið í Reykjavík en síðustu tunnunum var dreift i Fossvogi í dag.

Tunnuskiptum lokið í Reykjavík

Umhverfisvitund | 11. september 2023

Búið er að setja saman rúmlega 30 þúsund nýjar flokkunartunnur …
Búið er að setja saman rúmlega 30 þúsund nýjar flokkunartunnur og dreifa þeim á heimilin í borginni Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Tunnuskiptum vegna nýs flokkunarkerfis sorphirðu er lokið í Reykjavík en síðustu tunnunum var dreift i Fossvogi í dag.

Tunnuskiptum vegna nýs flokkunarkerfis sorphirðu er lokið í Reykjavík en síðustu tunnunum var dreift i Fossvogi í dag.

Á vef Reykjavíkurborgar segir að heildarumfang verksins hafi verið mikið en búið er setja saman rúmlega 30 þúsund nýjar flokkunartunnur og dreifa þeim á heimilin í borginni. Þar af eru um helmingur tvískiptar tunnur.

Búið er að dreifa körfum og bréfpokum til 57 þúsund heimila í borginni, sem þýðir að 4,4 milljón pokar fyrir lífrænan eldhúsúrgang rötuðu beint í eldhús Reykvíkinga.

280 tonn af lífrænum úrgangi safnað í ágúst

Stærsta breytingin með tunnuskiptunum er söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi. Núna í ágúst var safnað rúmlega 280 tonnum af lífrænum úrgangi en megnið af því fór áður í gráu tunnuna. Þetta þýðir lækkað kolefnisspor með því að draga úr urðun. Í staðinn er búin til molta og næringin fer aftur inn í hringrásina. Einnig er búið til metan, sem er nýtt á margvíslegan hátt, meðal annars á alla fjórtán sorphirðubíla Reykjavíkurborgar.

280 tonn af lífrænum úrgangi þýðir að úrgangur til urðunar í Reykjavík hefur dregist saman um 21,5% nú þegar. Þessi tala eftir að hækka enn frekar nú þegar síðasta hverfið hefur bæst við í nýja kerfið.

20 þúsund ílát tekin til baka

Ekki hefur aðeins verið dreift nýjum ílátum en einnig er búið að taka hátt í 20 þúsund ílát til baka. Sum þeirra hafa verið endurmerkt og verða notuð undir plast í einhverjum hverfum. Aðrar af þessum tunnum hafa lokið hlutverki sínu en elstu tunnurnar eru frá því uppúr miðjum níunda áratuginum. Þær eru sendar til Sorpu í efnislega endurvinnslu og verða notaðar til dæmis í framleiðslu á öðrum sorptunnum.

Hægt að breyta

Unnið hefur verið út frá fyrirliggjandi gögnum til að áætla magn tunna við hvert heimili. Þau sem sjá fram á að þurfa fleiri ílát eða öðruvísi skiptingu íláta geta notfært sér pöntunarform á vefnum til að sækja um breytingar eða viðbót.

Einnig, ef það hafa orðið frávik í dreifingu, þannig að tunnur vantar, eða fjöldi á körfum er rangur miðað við íbúðir vinsamlegast sendið póst á upplysingar@reykjavik.is eða hafið samband í síma 411 1111.

Búið er að dreifa körfum og bréfpokum til 57 þúsund …
Búið er að dreifa körfum og bréfpokum til 57 þúsund heimila í borginni Ljósmynd/Reykjavíkurborg
mbl.is