Keflavíkurflugvöllur kolefnishlutlaus fyrir 2030

Umhverfisvitund | 14. ágúst 2023

Keflavíkurflugvöllur kolefnishlutlaus fyrir 2030

Alþjóðasamtök flugvalla (ACI), hafa veitt Keflavíkurflugvelli alþjóðlega vottun í loftslagsmálum fyrir aðgerðir sem miða að því að draga úr kolefnisspori flugvallarins.

Keflavíkurflugvöllur kolefnishlutlaus fyrir 2030

Umhverfisvitund | 14. ágúst 2023

Keflavíkurflugvöllur hefur hlotið alþjóðlega vottun í loftslagsmálum fyrir aðgerðir sem …
Keflavíkurflugvöllur hefur hlotið alþjóðlega vottun í loftslagsmálum fyrir aðgerðir sem miða að því að draga úr kolefnisspori flugvallarins. Samkvæmt stefnu Isavia á starfsemi Keflavíkurflugvallar að vera orðin kolefnis-hlutlaus fyrir árið 2030. Ljósmynd/Aðsend

Alþjóðasamtök flugvalla (ACI), hafa veitt Keflavíkurflugvelli alþjóðlega vottun í loftslagsmálum fyrir aðgerðir sem miða að því að draga úr kolefnisspori flugvallarins.

Alþjóðasamtök flugvalla (ACI), hafa veitt Keflavíkurflugvelli alþjóðlega vottun í loftslagsmálum fyrir aðgerðir sem miða að því að draga úr kolefnisspori flugvallarins.

Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að stefna Keflavíkurflugvallar í loftslagsmálum hefur nú náð fjórða stigi í kolefnisvottunarkerfi samtakanna.

Kolefnisvottunarkerfið, ACA (Airport Carbon Accreditation), metur það hvort að flugvellir séu að mæla kolefnislosun með réttum hætti, en ásamt því metur það einnig árangur þeirra aðgerða sem miða að því að minnka kolefnisspor þeirra. Heildarmarkmið kerfisins er að draga úr umhverfisáhrifum flugvalla með því að mæla kolefnislosun, stýra henni og minnka.

Stefna að kolefnishlutleysi fyrir 2030

Í tilkynningu Isavia kemur fram að Það sé yfirlýst markmið fyrirtækisins að starfsemi Keflavíkurflugvallar verði orðin kolefnislaus fyrir árið 2030. Þeim árangri verði náð með samstarfi við hagaðila, virkri vöktun á umhverfisþáttum, orkuskiptum og með viðurkenndri kolefnisjöfnun eftir þörfum.

Til þess að ná þeim markmiðum hefu Isavia lagt áherslu á að reikna kolefnisspor allrar virðiskeðju flugvallarins, þ.e.a.s. losun hjá öllum fyrirtækjum og aðilum sem ekki eru undir stjórn Isavia en tilheyra aðfanga- og virðiskeðju félagsins.

Árangurinn er ekki síst til kominn vegna samstarfs meðlima flugvallarsamfélagsins á Keflavíkurflugvelli. Til að ná utan um heildarlosun flugvallarins var komið á samstarfsvettvangi allra þessara aðila með það að markmiði að finna leiðir til að minnka kolefnisspor flugvallarins í heild sinni.

Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia, segir í tilkynningunni að félagið sé á réttri leið með að ná kolefnishlutlausum rekstri.

Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia
Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia Ljósmynd/mbl.is.

„Félagið hefur, í samræmi við sjálfbærnistefnu sína, haft það að leiðarljósi að halda neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni í lágmarki í sátt og samvinnu við hagaðila. Þessi vottun sem Keflavíkurflugvöllur hefur fengið í dag, fjórða stig í ACA kolefnisvottunarkerfi ACI, er staðfesting á að við erum á réttri leið og sýnir og sannar að við erum að ná áþreifanlegum árangri í okkar vinnu við að draga úr kolefnislosun. Við erum á góðri leið með að ná takmarki okkar um kolefnaleysi í eigin rekstri fyrir árið 2030,“ segir Hrönn.

mbl.is