Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi, sór þess eið á þingi í morgun að hún myndi vernda stjórnarskrána en hún var kjörin á þing í tímamóta kosningum í landinu þann 1. apríl sl.
Sór Suu Kyi eiðinn í morgun ásamt 33 öðrum þingmönnum flokks hennar, Þjóðarbandalags um lýðræði, NLD, í höfuðborg landsins,Naypyidaw.
Suu Kyi, sem er friðarverðlaunahafi Nóbels, hefur að mest leyti verið í stofufangelsi undanfarin 22 ár.