Sagðist skilja ótta Ísraelsmanna

Obama sagðist skilja áhyggjur og ótta ísraelsku þjóðarinnar.
Obama sagðist skilja áhyggjur og ótta ísraelsku þjóðarinnar. AFP

Barack Obama sagði í viðtali sem sjónvarpað var í Ísrael í dag að samningaviðræður, ekki hernaðaraðgerðir, væru leiðin til að koma í veg fyrir að stjórnvöld í Íran kæmu sér upp kjarnorkuvopnum.

„Ég tel mig geta sýnt fram á, og það byggir ekki á von heldur staðreyndum og sönnunargögnum og greiningu, að besta leiðin til að koma í veg fyrir að Íran eignist kjarnorkuvopn sé sannreynanlegt strangt samkomulag,“ sagði forsetinn.

Obama sagði hernað ekki lausn vandans, jafnvel með þátttöku Bandaríkjamanna; hann myndi ef til vill tefja kjarnorkuáætlun Írana, en ekki gera út um hana.

Spurður að því hvort hann óttaðist að stjórnvöld í Ísrael gerðu árás á skotmörk í Íran án samráðs við Bandaríkin ef samkomulag næst í yfirstandandi viðræðum, sagðist forsetinn ekki vilja taka þátt í vangaveltum.

Hann sagðist hins vegar skilja áhyggjur og ótta ísraelsku þjóðarinnar.

Stefnt er að samkomulagi fyrir júnílok en stjórnvöld í Ísrael hafa sagt að Íran sé ekki treystandi til að standa við gefin loforð og útiloka ekki hernaðaraðgerðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert