Sex óbreyttir borgarar fórust þegar sjálfsvígsárás var gerð skammt frá æfingamiðstöð afgönsku leyniþjónustunnar í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun.
Þrír til viðbótar særðust.
Árásarmaðurinn var fótgangandi þegar hann sprengdi sjálfan sig í loft upp er starfsmenn voru að mæta til vinnu.
Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.