Breskir rannsakendur hafa hafið húsleit í skrifstofum fyrirtækisins Cambridge Analytica.
Hæstiréttur í London veitti í dag leyfi fyrir húsleitinni.
Elizabeth Denham sem fer fyrir upplýsingamálum í Bretlandi óskaði eftir henni.
Rannsókn hennar snýst um hvort fyrirtækið hafi komist á ólöglegan hátt yfir upplýsingar á Facebook í pólitískum tilgangi.