Brasilíska lögreglan hefur nú handtekið vinsælan lýtalækni, sem þekktur er fyrir rassastækkanir, eftir að sjúklingur hans lést aðeins nokkrum tímum eftir að hafa gengist undir aðgerð á heimili læknisins í Rio de Janeiro.
Læknirinn Denis Furtado, sem er þekktur í heimalandi sínu sem dr. Bumbum, flúði eftir að sjúklingurinn lést. Hann var síðan handsamaður fjórum dögum síðar í Rio de Janeiro eftir að lögreglu barst nafnlaus ábending um dvalarstað hans.
Lilian Quezia Calixto lést aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa gengist undir rassastækkun á heimili læknisins í Barra de Tijuca-hverfinu. Calixto hafði ferðast um 2.000 kílómetra leið til að hitta lækninn sem vinsæll er meðal fræga fólksins í Brasilíu. Eftir að hafa verið sprautuð með umdeildu efni, sem m.a. inniheldur akrýlhúðað fylliefni, fór henni hins vegar að líða illa.
Hún fór á sjúkrahús og þegar þangað var komið var hún með mjög öran hjartslátt og ofandaði. Hún fékk í kjölfarið fjórum sinnum hjartaáfall og lést.
Furtado á nú morðákæru yfir höfði sér. Móðir hans var einnig handtekin í tengslum við málið og er sökuð um að vera vitorðsmaður hans. Áður hafði kærasta hans, sem sögð er aðstoða hann í aðgerðunum, verið handtekin.
Lögfræðingur Furtados sagði á miðvikudag að hann væri saklaus, en að hann hefði ekki gefið sig fram við lögreglu af því að hann hefði fyllst ofsahræðslu.
Furtado var sagður geta gert „töfrandi“ breytingar á líkömum kvenna, sérstaklega á rassi þeirra. Hann var orðinn mjög þekktur í heimalandi sínu fyrir þessa sérstöðu sína. Hann er 45 ára gamall og er með um 650 þúsund fylgjendur á Instagram. Í myndbandi sem hann birti á Instagram í gær sagði hann dauða Calixto hafa verið slys. Hann hefði framkvæmt 9.000 sambærilegar aðgerðir og þær væru löglegar í Brasilíu.