Kærður fyrir sýruárás á 3ja ára son sinn

Lögreglan birti myndir úr öryggismyndavélum verslunarinnar þegar þremenninganna var leitað.
Lögreglan birti myndir úr öryggismyndavélum verslunarinnar þegar þremenninganna var leitað. Mercia lögreglan

Fimm menn komu í dag fyrir rétt í Bretlandi vegna sýruárásar á þriggja ára dreng. Einn hinna ákærðu er faðir drengsins.

Ráðist var á drenginn í versl­un­inni Home Bargains í Worcester síðdegis á laugardag. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús með alvarleg brunasár á andliti og hendi.

Fram kom í réttinum í dag að drengurinn og móðir hans væru komin í öruggt skjól, en ekki er enn vitað hver langtímaáhrif árásarinnar munu verða.

Faðir drengsins, sem ekki var nefndur á nafn af lagalegum ástæðum, kom fyrir dómara ásamt þremur Slóvökum og einum Breta.

Allir neituðu þeir sök.

Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald og munu koma fyrir dómara á ný í lok ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert