Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu hvetja fólk nú til að skera jarðarber í sundur áður en þeirra er neytt, eftir að nokkur tilfelli komu upp þar sem saumnálar fundust faldar í berjunum.
Segir BBC að tilkynnt hafi verið um jarðarberjaöskjur með nálum í matvöruverslunum í New South Wales, Queensland og Victoria.
Einn maður þurfti aðhlynningar við á sjúkrahúsi eftir að hann borðaði jarðarber með nál innan í. Þá beit níu ára drengur í jarðarber með nál í en kyngdi bitanum ekki.
Sewing needles found embedded in strawberries sold in Woolworths (Pic: Facebook/Joshua Gane) https://t.co/9YlcswkecK pic.twitter.com/TItpXMJ0wo
— ABC News (@abcnews) September 12, 2018
Nokkrar tegundir jarðarberja hafa nú verið teknar úr sölu og heilbrigðisyfirvöld hvetja þá sem kaupa jarðarber til að fara varlega.
Rannsókn hófst á málinu eftir að maður að nafni Joshua Gane greindi frá því á Facebook að vinur sinn hefði mátt þola verulegan sársauka í meltingarfærum eftir að hafa borðað jarðarber með nál í.