Samskipti milli ráðamanna Evrópusambandsins og Bretland hefur verið þyrnum stráð en Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að samningaviðræður um útgöngu Breta úr sambandinu séu nú farnar að minna á tilhugalíf tveggja broddgalta.
„Við erum ekki í stríði við Bretland,“ sagði Juncker í samtali við austurríska miðilinn Die Presse, degi eftir að Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, greindi frá því að leiðtogar ESB telji að hinn svokallaði Chequers-samningur Breta um útgöngu þeirra úr sambandinu, myndi grafa undan hinum sameiginlega markaði ESB.
Tveggja daga viðræðum um útgöngu Breta úr ESB lauk í austurrísku borginni Salsburg í gær. Ekki hefur náðst samkomulag um hvernig staðið verður að milliríkjaviðskiptum milli Bretlands og ríkja ESB.
„Við þurfum að fara varlega, eins og tveir broddgeltir sem elska hvor annan,“ sagði Juncker og bætti við að samningsaðilar þyrftu að fara gætilega til að forðast „skrámur.“ Hann telur það fullvíst að samningsaðilar séu að færast nær hvor öðrum en að ágreiningur væri enn mikill varðandi írsku landamærin.
„Það er einnig á kristaltæru að það er ekki mögulegt að yfirgefa Evrópusambandið en halda á sama tíma í þau réttindi sem fylgja sambandinu. Brexit er Brexit,“ sagði Juncker.